Lúkas D. Karlsson er nú umboðsaðili
Ortodent á Íslandi.
Flestir tannlæknar þekkja hina frábæru, mjúku Ortodent tannbursta. Þeir hafa einstakt útlit og hönnun sem einkennir þá og aðgreinir þá frá venjulegum tannburstum.
· Ortodent eru sérstaklega mjúkir og endingargóðir tannburstar. Ef miðað er við venjulega extra mjúka tannbursta þá endast Ortodent 2-3 sinnum lengur.
· Hárin á Ortodent tannburstanum eru afar fín. Innri burstinn tryggir rétta hreinsun á yfirborði á meðan ytri burstinn er hannaður til þess að hreinsa óaðgengilegri svæði milli tannanna.
· Þeir eru mjög hentugir fyrir þá sjúklinga sem eru með tannréttingateina og sjúklinga sem fengið hafa implönt. Einnig eru þeir frábærir fyrir sjúklinga með viðkvæma tannhálsa og tannholdssjúkdóma.
· Hefðbundnir tannburstar safna í sig bakteríum, með tímanum, sem geta leitt til sýkinga í munnholi. Ortodent eru nýstárlegir tannburstar sem eru byggðir á nanótækni. Nanóagnir úr silfri eru unnar í burstahárin, þær gefa frá sér jónir sem skemma bakteríufrumurnar og drepa þær.
Ortodent tannburstar eru frábær kostur fyrir þá
sem er annt um tannheilsu sína.