Um okkur

Lúkas D. Karlsson er fjölskyldufyrirtæki stofnað af Dieter og Önnu Luckas sem hefur starfað í meira en 30 ár.
Dieter og Anna komu til Íslands árið 1965 og var Dieter vel mentaður tannsmiður og starfaði í Þýskalandi og Sviss í mörg ár. Hann bar með sér hingað til lands allra nýjustu þekkingu í faginu sem varð hvatning þeirra hjóna til að stofna glæsilegt tannsmíðaverkstæði og innflutning á efnum og tækjum fyrir tannsmiði og tannlækna. Markmiðið þeirra var að veita persónulega og alhliða þjónustu til viðskiptavina sinna og er Lúkas D. Karlsson fyrirtæki sem byggt er á föstum grunni, sem hefur verið og dafnað með árunum.

Í dag bjóðum við upp á frábært úrval af tannlækna- og tannsmíðavörum ásamt sótthreinsivörum og almennum tannhreinsivörum. Viðskiptavini okkar eru meðal annars tannlæknar og tannsmiðir, snyrtifræðingar, fótaaðgerðafræðingar, hárgreiðslustofur, heilsugæslustöðvar og sjúkrahús.

Hjá okkur er valinn maður í hverju rúmi, mikil reynsla og metnaður í því að veita góða þjónustu og bjóða viðskiptavinum okkar upp á fyrsta flokks vöru og úrval af þekktustu vörumerkjum sem eru á markaðnum.

Við horfum björtum augum til framtíðar full tilhlökkunar til þess að takast á við nýjustu tækni og framfarir á okkar sviði og fullnægja kröfum og þörfum viðskiptavina okkar.

Karl Udo Luckas